Á þessari síðu finnur þú upplýsingar um uppsetningu Onleihe appsins fyrir Android. Appið er nauðsynlegt til að hægt sé að nálgast stafræna bókasafnið með yfir 20000 þýskum titlum í gegnum símann þinn eða spjaldtölvuna.
Til að nota Onleihe þarf skráningu hjá heimasíðunni Mein Goethe.de. Eigir þú ekki reikning á heimasíðunni okkar, skaltu vinsamlegast búa hann fyrst til.
Skráningin og notkun þjónustunnar er gjaldfráls.
Ef þetta er í fyrsta skipti sem þú sækir bókasafnsgögn, munt þú verða beðin/n að samþykkja notendaskilmála og persónuverndarstefnu. Vinsamlega staðfestu að þú samþykkir.
Nú hefur þú virkjað Onleihe appið. Ef einhver vandamál koma upp við virkjunina eða við notkun, hafðu samband í gegnum fyrirspurnagluggann eða í síma +45 33366456. Við aðstoðum með ánægju!
Við vonum að þú skemmtir þér vel við að skoða rafræna bókasafnið okkar.